Húsvíkingar og gestir bjóða Victoríu krónprinsessu Svíþjóðar og eiginmann hennar Daniel prins velkomin til HúsavíkurFréttatilkynning - - Lestrar 697
Victoría krónprinsessa Svíþjóðar og Daniel prins heimsækja Ísland í boði forseta Íslands og koma til Húsavíkur fimmtudaginn 19. júní næstkomandi. Íbúum bæjarins og gestum gefst tækifæri til að taka á móti og hitta krónprinsessuna kl. 12:00 á hádegi á Hafnarstéttinni á Húsavík. Þangað koma gestirnir ásamt forseta Íslands og forsetafrú og fylgdarliði að lokinni hvalaskoðunarferð. Þau fagna brúðkaupsafmæli sínu um þessar mundir.
Ungir sem eldri eru hvattir til að fjölmenna og þeir sem vilja geta tekið með sér íslenska og sænska fána.
Húsavík hefur á undanförnum árum verið vettvangur Sænskra daga og unnið er að uppbyggingu Garðarshólms í samvinnu við sænska aðila.
Að lokinni stund með íbúum og gestum situr Victoría krónprinsessa ásamt Daniel prins og forsetahjónunum hádegisverð í boði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra og frú Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur.