Húsavíkurmótið í handbolta um helgina

Húsavíkurmótið í handbolta fer fram um komandi helgi en mótið er liður í Íslandsmóti 6. flokks kvenna, eldra ár.

Húsavíkurmótið í handbolta um helgina
Íþróttir - - Lestrar 310

Húsavíkurmótið í handbolta fer fram um komandi helgi en mótið er liður í Íslandsmóti 6. flokks kvenna, eldra ár. 

Þetta er síðasta mót vetrarins í þessum aldursflokki og því verða kringdir íslandsmeistarar að móti loknu.

Að þessu sinni eru 23 lið frá 13 félögum skráð til leiks og má búast við tæplega 170 þátttakendum. Ef þjálfarar, farastjórar og foreldrar eru taldir með að þá má búast við að það verði aukning í bænum um 250 manns.

Mótið er árlegur liður í starfi handknattleiksdeildarinnar og hefst það á laugardagsmorgun klukkan 10:00. Stefnt er á mótslit klukkan 13:00 á sunnudeginum. 

það má því búast við miklu lífi í kringum íþróttahöllina um helgina og eru áhugasamir hvattir til að kíkja við í íþróttahöllinni um helgina þar sem efnilegar handboltastúlkur munu leika lystir sínar. (volsungur.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744