23. apr
Húsavíkurmótið í handboltaÍþróttir - - Lestrar 453
Hið árlega Húsavíkurmót í handbolta fer fram um helgina í íþróttahöllinni á Húsavík.
Mótið hófst í morgun klukkan 08:00 og er leikið fram yfir kvöldmat í dag og mótinu lýkur í hádeginu á morgun, sunnudag.
Mótið er haldið fyrir iðkendur í 6. flokki kvenna eldra ár og er liður í Íslandsmóti HSÍ. Að þessu sinni eru 29 lið skráð til leiks frá 17 félögum og í heildina eru 215 iðkendur sem munu leika handbolta í höllinni um helgina.
Það má því búast við um 300 manns í bæinn um helgina í tengslum við mótið og mikið líf í höllinni og um að gera að líta við. (volsungur.is)