Hrútar frestast vegna veðurblíðu

Vetrartökum á kvikmyndinni Hrútum í leikstjórn Gríms Hákonarsonar hefur verið frestað fram í janúar vegna snjóleysis í Bárðardal.

Hrútar frestast vegna veðurblíðu
Fréttatilkynning - - Lestrar 533

Charlotte Böving & Sigurður Sigurjónsson við tökur
Charlotte Böving & Sigurður Sigurjónsson við tökur

Vetrartökum á kvikmyndinni Hrútum í leikstjórn Gríms Hákonarsonar hefur verið frestað fram í janúar vegna snjóleysis í Bárðardal.

Síðari hluti af tökum hefur staðið yfir nú í nóvember en síðustu tökudagarnir hafa nú verið færðir fram í janúar vegna einmuna veðurblíðu á Norðurlandi.


Í kvikmyndinni fara þeir Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson með hlutverk tveggja bræðra sem stunda búskap á samliggjandi jörðum en hafa ekki talast við í fjörtíu ár.

Framvinda sögunnar krefst þess að í Bárðardalnum sé alvöru vetur og snjór yfir öllu meðan á tökum stendur líkt og algengt er á þessum árstíma. Vetrartökur hófust þann 10. nóvember í frosthörkum við alhvíta jörð. Nú blasa hins vegar við græn tún og fuglasöngur. Samkvæmt veðurspám er milt veður í kortunum fyrir norðan og lítil von á snjónum sem nauðsynlegur er svo tökur geti haldið áfram.

Í fréttatilkynningu segir að þessi skortur á vetrarveðri valdi framleiðslunni auðvitað töluverðu raski. Tökur hafa hins vegar gengið að óskum hingað til og telja aðstandendur myndarinnar ólíklegt að tafirnar muni hafa áhrif á útgáfu myndarinnar, en ætlunin er að frumsýna hana næsta haust.



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744