Hlutverk raforku og loftslagsmál í brennidepli á vorfundi Landsnets á þriðjudaginnFréttatilkynning - - Lestrar 378
Landsnet býður til árlegs vorfundar félagsins þriðjudaginn 5. apríl nk., kl. 9-11 á Hilton Reykjavík Nordica, þar sem hlutverk raforku í tengslum við stöðu loftslagsmála á Íslandi og áskoranir varðandi þróun og uppbyggingu raforkuflutnings-kerfisins verða í brennidepli.
Fjallað verður um hvar Landsnets er í stóru myndinni og þær áskoranir sem félagið stendur frammi fyrir varðandi stefnumótun, þróun og uppbyggingu flutningskerfis raforku á Íslandi, hver staða loftslagsmála er í heiminum og á Íslandi og hvernig Íslendingar geti lagt þar sitt lóð á vogarskálarnar. Einnig verður sjónum beint að orkuskiptum í íslenskum sjávarútvegi og hvernig megi draga enn frekar úr losun gróðurhúsaloftegunda til framtíðar í greininni.
Fundurinn hefst með ávarpi iðnaðarráðherra, Ragnheiðar Elínar Árnadóttur. Aðrir ræðumenn eru Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Landsnets, Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, Guðni Elísson, prófessor við Háskóla Íslands og Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Fundarstjórn annast Edda Hermannsdóttir.
Vorfundur Landsnets er öllum opinn og þátttökuskráning er á heimasíðu Landsnets, eða í síma 563 9300. Bein útsendin verður frá fundinum á heimasíðu Landsnets og jafnframt verður hægt er að koma spurningum til frummælenda á framfæri á twitter undir #landsnet.