Hilmar Valur ráðinn til starfa hjá stéttarfélögunum

Hilmar Valur Gunnarsson hefur verið ráðinn í tímabundin verkefni á skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík. Hilmari er ætlað að starfa að málefnum

Hilmar Valur. Ljósm. HO
Hilmar Valur. Ljósm. HO

Hilmar Valur Gunnarsson hefur verið ráðinn í tímabundin verkefni á skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík. Hilmari er ætlað að starfa að málefnum atvinnuleitenda í vetur en rúmlega 200 manns eru skráðir atvinnulausir um þessar mundir á félagssvæði Framsýnar og fer því miður vaxandi.

 

Hilmar Valur er fæddur og uppalinn á Húsavík. Hann útskrifaðist frá Framhaldsskólanum á Húsavík vorið 2004 af félagsfræðibraut, tók hálft ár í Idrætshøjskolen i Århus veturinn 2005. Útskrifaðist síðan frá Háskóla Íslands vorið 2009 með B.A. próf í félagsráðgjöf. Áður starfaði Hilmar sem bensíntittur hjá Essó, handlangari hjá Víkursmíði, aðstoðarmaður hjá Steina í Heimabakarí og sem leiðsögumaður og verkamaður hjá Norðursiglingu.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744