Hillary Clinton bað fyrir kveðju til Örlygs Hnefils yngri

Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna bað Össur Skarphéðinsson kollega sinn fyrir kveðju til Örlygs Hnefils Örlygssonar á fundi þeirra í

Geimfararnir við Grjótagjá.
Geimfararnir við Grjótagjá.

Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna bað Össur Skarphéðinsson kollega sinn fyrir kveðju til Örlygs Hnefils Örlygssonar á fundi þeirra í Washington í dag en hann á frumkvæði að sýningunni "Geimfarar í Þingeyjarsýslu" sem opnuð verður í Safnahúsinu nk. föstudag. 

 

Á fundinum greindi Össur Hillary frá opnun ljósmyndasýningarinnar en hún er haldin til minningar um komu  Neil Armstrong og fleiri bandarískra geimfara í Þingeyjarsýslu þar sem þeir æfðu sig fyrir tunglferð

Á heimasíðu Safnahússins segir:

Árið 1965 kom hópur starfsmanna Bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA hingað til lands. Í hópnum voru geimfaraefni stofnunarinnar, þeirra á meðal Buzz Aldrin sem steig annar manna fæti á tunglið. Þeir fóru til æfinga og skoðuðu náttúru í Þingeyjarsýslum, sérstaklega við Mývatn og í Öskju. Tveim árum síðar árið 1967 kom annar hópur frá NASA og meðal geimfaraefna í þeim hóp var Neil Armstrong. Af þeim 12 mönnum sem hafa stigið fæti á tunglið komu 9 í sýslurnar okkar til að æfa sig og læra jarðfræði undir handleiðslu Íslenskra jarðvísindamanna. Með í för voru hérlendir blaðamenn sem skráðu ferðasöguna og tóku mikið af myndum.

Náttúrufræðistofnun Íslands lánar tunglstein sem Íslenska ríkið fékk að gjöf frá Bandaríkjunum í kjölfar tunglferðanna til sýningarinnar. Ásamt steininum er íslenskur fáni sem flogið var með til tunglsins og aftur til baka á sýningunni.

Einnig eru á sýningunni myndir frá frumárum geimferðanna. Medalía sem slegin var árið 1969 úr málmi sem geimfararnir í Apollo 8 flugu með kringum tunglið á jóladaga 1968 (í fyrstu ferð manna umhverfis tunglið). Medalíur af þessu tagi voru gefnar starfsmönnum NASA og völdum verktökum sem unnu að tunglferðunum. Líkan af geimflauginni Saturn V sem flaug geimförunum til tunglsins og Hasselblad myndavél samskonar þeim sem notaðar voru í geimferðunum.

Að lokum eru átta listaverk eftir Erró til sýnis. Verkin eiga það öll sameiginlegt að fjalla á einn eða annan hátt um geimferðir.

Í maí verður sýningin opin alla virka daga frá 10-16 en frá og með 1.júní verður opið alla daga vikunnar frá 10-18.

Sýningin mun standa til loka júlímánaðar 2011.

 

 

 

 

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744