Heimsókn starfsmanna PCC BakkiSilicon til Póllands

Á dögunum lögðu þrír starfsmenn PCC BakkiSilicon, þau Ásta Hermannsdóttir, Gopal Debnath og Rolf Prack land undir fót og fóru til Póllands.

Í kvartsnámu í Kielce. Lj. pcc.is
Í kvartsnámu í Kielce. Lj. pcc.is

Á dögunum lögðu þrír starfsmenn PCC BakkiSilicon, þau Ásta Hermannsdóttir, Gopal Debnath og Rolf Prack land undir fót og fóru til Póllands.

Tilgangur ferðarinnar var að fylgjast með ferlinu þegar eitt af aðalhráefnum verksmiðjunnar, kvarts, ferðaðist úr námu og alla leið um borð í skip sem síðan sigldi til Húsavíkur með farminn.

Frá þessu segir á heimasíðu fyrirtækisins en þar má sjá fleiri myndir:

"Ferðin hófst í Kielce þar sem náman er staðsett og þar var bæði fylgst með þvotti og sigtun á efninu, og einnig þegar því var síðan mokað um borð í lestarvagna sem flytja efnið alla leið til Gdynia þar sem því er mokað um borð í skip.

Allt var til fyrirmyndar í Kielce og tóku samstarsmenn okkar í PCC Silicium vel á móti okkur og útskýrðu allt ferlið gríðarlega vel, og kom það í rauninni á óvart hversu flókið það var.

Í Gdynia notuðum við tímann vel í að fylgjast með hvernig efninu var mokað með kröbbum úr vögnunum og um borð í skipið. Í þessari sendingu voru 6200 tonn af efni og tók það innan við tvo vinnudaga að fylla skipið.

Til að klára ferlið þá tókum við á móti skipinu í Húsavíkurhöfn þann 5.apríl sl. Efnið er núna komið til okkar uppá svæði". Segir í fréttinni en skipið sem um ræðir heitir Victoriaborg og er hér á myndum Gauks Hjartarsonar við Bökugarðinn á meðan losun stóð  og eftir hana.

Victoriaborg við Bökugarðinn

Með því að smella á myndirnar má sjá þær í hærri upplausn.

Victoriaborg við Bökugarðinn


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744