Heimboð jólasveinanna í Dimmuborgum

Nú styttist í það að jólasveinarnir í Dimmuborgum fari á kreik en þar hafa þeir búið svo lengi sem elstu menn muna. Og jafnvel lengur.   Næstkomandi

Heimboð jólasveinanna í Dimmuborgum
Almennt - - Lestrar 166

KJötkrókur og Giljagaur
KJötkrókur og Giljagaur

Nú styttist í það að jólasveinarnir í Dimmuborgum fari á kreik en þar hafa þeir búið svo lengi sem elstu menn muna. Og jafnvel lengur.

 

Næstkomandi laugardag ætla þeir að bjóða fólki heim í Dimmuborgir líkt og þeir hafa gert undanfarin ár og stendur heimboðið frá kl. 15 – 15.30.

 

 

 

Þaðan verður svo farið í Skjólbrekku þar sem þeir bjóða í jólasveinakaffi. Þar verða borð hlaðin kræsingum sem þeir hafa útbúið með hjálp heimamanna í Mývatnssveit. Börn úr Tónlistarskólanum í Reykjahlíð munu flytja jólatónlist og sitthvað fleira verður í boði.

 

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744