13. ágú
Haustfagnaður í LanganesbyggðAðsent efni - - Lestrar 327
Þá er komið að því. Haustfagnaður í Langanesbyggð verður í félagsheimilinu
Þórsveri á Þórshöfn. Þrátt fyrir að enn verði bullandi sumar á Langanesi, halda þeir félagarnir Guðmundur
Vilhjálmsson og Þórir Jónsson Haustfagnað.
Að venju er boðið upp á tónlistarmenn í hæsta gæðaflokki og fremstur meðal jafningja er að
sjálfsögðu hann Hreimur Örn Heimisson sem mun heiðra Þórshafnarbúa í annað sinn með nærveru sinni, en hann hefur áður leikið á Kátum dögum. Einnig verður sérstakur gestur Ína Valgerður Péturdóttir sem ætlar að
kíkja á ballið og taka lagið með Rokkabillybandinu.
Einnig munum við fá góðan gest frá Svíþjóð, en Björn
Vilhjálmsson Kontarabassaleikari mun koma gagngert til landsins til að leika á Haustfagnaðinum. Hann mun bæði taka með sér kontrabassa og rafbassa og
verður spennandi að vita hvort gamlar Rokkabillybandsperlur muni hljóma í Þórsveri með dynjandi kontrabassaundirleik.
Gert er ráð fyrir að húsið opni kl 23.00 og dansleikurinn standi til 3.00.
Athugið að strákarnir eru frægir fyrir að byrja snemma og enda ......
Haustfagnaður í Langanesbyggð.
Hreimur Örn, Ína Valgerður og Rokkabillyband Reykjavíkur.
Laugardaginn 13 ágúst 2011 23-03.
Aldurstakmark 18 ár
Miðaverð 3.000 kr
Athugið að strákarnir eru frægir fyrir að byrja snemma og enda ......
Haustfagnaður í Langanesbyggð.
Hreimur Örn, Ína Valgerður og Rokkabillyband Reykjavíkur.
Laugardaginn 13 ágúst 2011 23-03.
Aldurstakmark 18 ár
Miðaverð 3.000 kr