Haltu kjafti og vertu þægAlmennt - - Lestrar 235
Haltu kjafti og vertu þæg er nafn á sýningu sem opnaði í Safnahúsinu stundvíslega kl. 9:00 í morgun. Á sýningunni er að finna margvíslegar skoðanir um ástandið á Íslandi í dag.
Sigurjón B.Hafsteinsson forstöðumanns Safnahússins er sýningarstjóri sýningarinnar ásamt Tinnu Grétarsdóttur og segir hann efnið á sýninguna koma úr ýmsum áttum en hún byggir á lýðræðislegri hefð og á meðal efnis eru bloggfærslur, ljósmyndir og myndbönd.
Á vefsíðu Safnahússins segir m.a. um sýninguna sem stendur yfir til 30 janúar :
Sýningin "Haltu kjafti og vertu þæg!" er sýning í Safnahúsinu á Húsavík á skoðunum fólks um ástand þjóðfélagsmála í kjölfarið á hruni fjármálakerfisins á Íslandi. Sérstöku ljósi er beint að rödd fólksins í landinu, þjóðinni, og þeim mótmælum sem fólk hefur staðið fyrir á undanförnum mánuðum. Yfirskrift sýningarinnar er fengin úr leiðara Fréttablaðsins seint að hausti 2008, sem segir að viðhorf valdhafa sé að þjóðin eigi bara að halda kjafti og vera þæg. En er hún það? Getur hún það?