Halla Bríet skoraði fjögur mörk gegn ÍR

Halla Bríet Kristjánsdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði öll mörk Völsungs gegn ÍR í dag en leikið var á PCC vellinum.

Halla Bríet skoraði fjögur mörk gegn ÍR
Íþróttir - - Lestrar 208

Halla Bríet í leik með Völsungi.
Halla Bríet í leik með Völsungi.

Halla Bríet Kristjánsdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði öll mörk Völsungs gegn ÍR í dag en leikið var á PCC vellinum.

Lokatölur 4-1 en Völsungur komst yfir snemma leiks og tvöfaldaði forystuna fyrir leikhlé.

Halla Bíet skoraði svo tvö mörk til viðbótar áður en gestirnir réttu úr kútnum rétt fyrir leikslok.

Sigurinn fleytir Völsungi upp í 19 stig og þéttir topppakkann 2. deildar enn frekar.
 
Stelpurnar eiga heimaleik gegn Fjölni í næstu umferð, næsta sunnudag kl.16.00.
 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744