Hálfvitar leggja undir sig Húsavík.Aðsent efni -  - Lestrar 967
			
		Laugardaginn 1. mars hyggjast gárungarnir í Ljótu hálfvitunum snúa aftur til
heimahaga sinna á Húsavík og mála bæinn hálfvitalegan. Þeir ætla að halda
hvorki
 fleiri né færri en þrenna tónleika þennan dag, fyrir alla þá
aldurshópa sem fundist
 hafa á Húsavík.
Þeir ætla reyndar að þjófstarta kvöldið áður þegar þeir halda
uppi
 fjörinu á árshátíð Framhaldsskólans á Húsavík en kl.
14 á laugardaginn ætla þeir að
 mæta galvaskir í Hvamm, dvalarheimili aldraðra
á Húsavík, og spila fyrr heimafólk.
  Kl. 17 verða svo
fjölskyldutónleikar á Fosshótel Húsavík, sérstaklega ætlaðir yngstu
 kynslóðinni, og verða þeir tónleikar í boði húsvískra fyrirtækja og aðgangseyrir
því       
enginn. Um kvöldið verða svo á sama stað tónleikar fyrir fullorðna, nánar tiltekið
18 ára og eldri, og verða það tónleikar í fullri lengd þar sem leikin verða
flunkuný
 hálfvitalög sem ekki hafa verið leikin áður á húsvískri
grund í bland við lög af
 plötunni sem gefin var út í fyrra. Húsið opnar kl.
21 og hefjast tónleikarnir kl.
 22. Aðgangseyrir á þessa tónleika er kr. 1.500.
      
 Þess má geta að þessir tónleikar marka í raun upphafið að nýju
hálfvitaári þar sem
 þetta eru fyrstu opinberu tónleikar hálfvitanna á
árinu.
      
 
  
      
    
































									
































 640.is á Facebook