Hættustigi aflétt í Útkinn og vegurinn opinn

Staðan í Útkinn hefur nú verið endurmetin hvað varðar hættustig það sem verið hefur þar í gildi sl. daga.

Hættustigi aflétt í Útkinn og vegurinn opinn
Almennt - - Lestrar 127

Í Útkinn sl. mánudag.
Í Útkinn sl. mánudag.

Staðan í Útkinn hefur nú verið endurmetin hvað varðar hættustig sem verið hefur þar í gildi sl. daga.

Ofanflóðavakt veðurstofunnar telur ekki ástæðu til viðbúnaðar vegna skriðuhættu á svæðinu og góð veðurspá er næstu daga.

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra segir að ríkislögreglustjóri hafi ákveðið í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra að færa viðbúnaðarstigið niður á óvissustig þar sem m.a. hreinsunarstarfi er ekki lokið og vatnsagi er enn við veg og vegurinn jafnframt viðkvæmur. 

Vegurinn um Útkinn hefur verið opnaður fyrir almenna umferð en vegfarendur hvattir til að fara varlega.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744