Haddi skoraði sitt fyrsta mark fyrir GAIS

Hallgrímur Jónasson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Gautaborgarliðið GAIS í lokaleik sænsku úrvalsdeildarinnar um helgina. Haddi hefur átt við meiðsli að

Haddi skoraði sitt fyrsta mark fyrir GAIS
Almennt - - Lestrar 274

Haddi í leiknum gegn Halmastad.
Haddi í leiknum gegn Halmastad.

Hallgrímur Jónasson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Gautaborgarliðið GAIS í lokaleik sænsku úrvalsdeildarinnar um helgina. Haddi hefur átt við meiðsli að stríða frá því að gekk til liðs við GAIS fyrir þetta tímabil en er óðum að ná sér á strik og lék síðustu leiki liðsins.

 

640.is hafði samband við Hadda og sagði hann það hafa verið verulega gaman að enda tímabilið á sigri sem og að skora eitt markanna í leiknum gegn Halmstad. Hann sagði lið GAIS hafa átt í ströggli framan af móti en síðari helmingur keppnistímabilsins hafi verið góður.  

 

Haddi segir meiðslin hafa tekið mikið á, bæði líkamlega og ekki síst andlega því það sé óneitanlega erfitt að koma í nýjan klúbb og byrja á því að vera sex mánuði frá eftir hafa þurft að fara í aðgerð vegna meiðsla. „En ég vann vel í meiðslunum allan tímann og hafði trú á því að ég myndi ná mér góðum og komast í liðið ef ég legði mig allan fram. Og sem betur fer tókst það og núna get ég farið ánægður frá þessu tímabili“. Sagði Haddi og bætti við að framundan séu æfingar út nóvember. Síðan er frí í desember og þá ætlar hann að koma heim til Húsavíkur með fjölskyldu sína.

 

Haddi var valinn í landslið Íslands sem spilar við lið Írans í Teheran þann 10 nóvember og sagðist hann hlakka til þessa verkefnis og ekki spillti fyrir að bæði Pálmi Rafn og Baldur (Sigurðsson) væru í hópnum.

Haddi að skora gegn Halmstad á sunnudaginn.

Hér má skoða myndskeið úr leiknum og m.a  mark Hadda.



 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744