Guðrún Þóra semur við Selfoss en spilar með Völsungi í sumar

Völsungur og Selfoss hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Guðrúnar Þóru Geirsdóttur yfir í Selfoss.

Guðrún Þóra Geirsdóttir.
Guðrún Þóra Geirsdóttir.

Völsungur og Selfoss hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Guðrúnar Þóru Geirsdóttur yfir í Selfoss.

Guðrún verður lánuð aftur í Völsung og mun því leika með liðinu í sumar.

Frá þessu segir á Fésbókarsíðu Græna hersins.
 
"Guðrún Þóra er fædd 2004 og er efnilegur leikmaður sem hefur sett mark sitt á Völsungs liðið þar sem hún var lykilleikmaður síðasta sumar.
 
Guðrún hefur staðið sig vel, tekið miklum framförum sem leikmaður og hefur meðal annars verið valin á æfingar U-17 ára landsliðs Íslands.
 
Þetta er stórt skref fyrir Guðrúnu og ánægjulegt að lið úr efstu deild sækist eftir kröftum hennar. Við óskum Guðrúnu Þóru velfarnaðar í framtíðinni og hlökkum til að fylgjast með henni inná vellinum í sumar og á komandi árum" segir í tilkynningunni.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744