04. ágú
Guðni Braga gefur út plötuna XL – Söfnun á Karolinafund fyrir útgáfunniFréttatilkynning - - Lestrar 569
Tónlistarmaðurinn Guðni Bragason gefur út plötuna XL og er með söfnun á vefnum Karolinafund fyrir útgáfunni.
Þar hægt að kaupa diskinn fyrirfram og þannig hjálpað til að fjármagna verkefnið.
"Söfnunin hefur gengi vel en það er enn töluvert eftir í land og ég vona að sem flestir sjái sér fært að leggja þessu lið og eignist diskinn, nú eða miða á útgáfutónleika eða jafnvel kaupa einkatónleika heim í stofu" Segir Guðni en nú þegar 11 dagar eru eftir af henni hefur safnast fyrir um 72% af heildarupphæðinni.