Guðmundur Óli semur við ÞórÍþróttir - - Lestrar 439
Í dag skrifaði Guðmundur Óli Steingrímsson undir samning við Þór og því ljóst að þessi sterki leikmaður mun leika með Þór í fyrstu deildinni í sumar.
Guðmundur Óli, sem er 29 ára gamall er uppalinn hjá Völsungi og lék með liðinu til ársins 2008 og svo aftur árið 2013. Guðmundur lék með KA í fimm tímabil á árunum 2008-2012.
Auk þess hefur hann einnig leikið með KV og KFG. Guðmundur Óli á alls 207 leiki að baki í deild og bikar og skorað 36 mörk í þeim leikjum.
Það er því ljóst að Guðmundur Óli á eftir að styrkja hóp Þórs til muna enda reynslu mikill leikmaður eins og tölfræðin sýnir.
Guðmundur Óli hefur æft með Þór undanfarnar vikur og spilaði m.a. með Þór í Kjarnafæðismótinu.
Á meðfylgjandi mynd, sem fengin er af heimasíðu Þórs, eru auk Guðmundar Óla Aðalsteinn Ingi Pálsson formaður knattspyrnudeildar og Halldór (Donni) Sigurðsson þjálfari meistaraflokks sem skrifuðu undir samninginn fyrir hönd Þórs.

































































640.is á Facebook