Gönguleiðin að Dettifossi og Selfossi orðin snjólausAlmennt - - Lestrar 327
Gönguleiðin að Dettifossi og Selfossi er orðin snjólaus og hefur það aldrei áður gerst í apríl, oft eru skaflar fram í júní.
Frá þessu er greint á Fésbókarsíðu þjóðgarðsins Jökulsárgljúfurs en þar segir jafnframt að örlítill raki sé eftir á stöku stað en það ætti að þorna næstu daga.
Leiðir norðan Dettifoss eru enn lokaðar, þar á meðal Hafragilsundirlendið.
Einnig er búið að opna veginn að Hafragilsfossi, hann er frekar grófur og hægt að reka litla bíla niður.
Hitinn fór í 17 gráður inn við Botnstjörn í Ásbyrgi í dag en það hefur verið sól og blíða í Byrginu síðustu daga. Við Botnstjörn er enn snjór og klaki segir á Fésbókarsíðu þjóðgarðsins Jökulsársgljúfurs en þaðan er meðfylgjandi mynd er fengin.





























































640.is á Facebook