20. apr
Góðar gjafir til BorgarhólsskólaAlmennt - - Lestrar 513
Það er mikilvægt fyrir skóla eins og Borgarhólsskóla að eiga góða velunnara að.
Nýverið fékk skólinn tvær peningagjafir.
Íslandsbanki styrkti skólann um kaup á tæknilegói að upphæð 350 þúsund krónur sem skiptist á tvö ár.
Sóroptimistakonur komu einnig færandi hendi með 50 þúsund krónur í farteskinu sem ætlaðar eru til að styðja við nám fatlaðra nemenda skólans.
Á heimasíðu skólans eru þessum aðilum færðar bestu þakkir fyrir.