Góð veiði í upphafi grásleppuvertíðarAlmennt - - Lestrar 311
Góð veiði er hjá húsvískum grásleppubátum í upphafi vertíðar.
Sumir voru að draga í fyrsta skipti í dag, einn dró í gær í fyrsta skipti og enn aðrir draga í fyrsta skipti á morgun.
Sem sagt vertíðin að fara af stað og ekki skemmdi veðurblíðan fyrir í dag.
Sigurður Kristjánsson var að draga í fyrsta skipti í dag og ekki nóg með það, hann var að draga í fyrsta skipti á nýjum bát sem hann keypti fyrr í vetur. Ósk ÞH 54 heitir hann og er ellefu tonna plastbátur.
Sigurður dró 28 net í dag og var aflinn rúmlega tvö tonn og var hann þokkalega ánægður með það. Sigurður er einn á og gekk vel að draga netin á nýja bátnum en trossurnar sem hann dró í dag lágu í sjó frá Bakkahöfða inn að Laugardalnum.
Sigurður á Óskinni dregur grásleppunet fram undan Laugardalnum.
Ósk ÞH 54 kemur að landi en nafnið kemur frá fyrsta báti Sigurðar en síðar átti hann Ása og Von sem hann á reyndar ennþá.
Sigurður Kristjánsson grásleppukarl.
Baldvin ÞH 20 kemur að landi eftir að hafa lagt hluta grásleppunetanna í sjó.
Kallinn í brúnni á Baldvin ÞH. Sigdór Jósefsson og rær hann við annan mann.
Forvitnast um aflabrögð á Óskinni.
Löndun hafin og fleiri bátar koma að.
Jón Ágúst Bjarnason ábúðarfullur á krananum.
Sigurður ísar grásleppuna sem verður skorin hjá GPG á morgun.
Eki Matta ÞH 301 var með um fjögur tonn í 45 net.
Hörður Eiríksson og Jón Óli Sigfússon bíða eftir að komast undir kranann.
Sóley ÞH 28 var með þrjú tonn.
Benedikt Jóhannsson klár með endann.
Feðgar að landa, Benedikt og Jóhann Gunnarsson á Sóley.
Sigrún Hrönn ÞH 36 var með fjögur tonn en þeir drógu einniog í gær og voru þá með þjú tonn.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.