Góð gjöf frá Soroptimistaklúbbi Húsavíkur og nágrennis

Á dögunum komu félagar úr Soroptimistaklúbbi Húsavíkur og nágrennis færandi hendi í Borgarhólsskóla með góða gjöf.

Á dögunum komu félagar úr Soroptimistaklúbbi Húsavíkur og nágrennis færandi hendi í Borgarhólsskóla með góða gjöf.

Henni er ætlað að vera til góðra verka í Námsveri skólans en það eru 75 þús. kr.

Upphæðin er ágóði af sölu Kærleikskúlunnar sem klúbburinn selur fyrir jólin.

Frá þessu segir á heimasíðu skólans þar sem Soroptimistum er þakkað fyrir gjöfina sem mun nýtast vel til uppbygging í Námsveri skólans.

Soroptimistar eru alheimssamtök kvenna í stjórnunar- og starfsgreinastéttum sem hafa að leiðarljósi hjálpar- og þjónustustörf til að efla mannréttindi og stöðu kvenna. Soroptimistaklúbbi Húsavíkur og nágrennis var stofnaður 4. júní árið 1983 og hefur styrkt einstaklinga, stofnanir og félagasamtök.

Aðsend mynd

Þórey Sigurðardóttir, t.v. og Adrienne Davis t.h. ásamt Þórgunni Reykjalín skólastjóra.

Ljósmynd Borgarhólsskóli.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744