Glitský á himni

Þau eru falleg glitskýin sem skreyttu himininn hér á Húsavík og víða á Norðurlandi í morgun.

Glitský á himni
Almennt - - Lestrar 595

Glitský á himni í morgun.
Glitský á himni í morgun.

Þau eru falleg glitskýin sem skreyttu himininn hér á Húsavík og víða á Norðurlandi í morgun. Á  Vísindavefnum segir að glitský myndist í heiðhvolfinu, oft í 15-30 km hæð og sjáist helst um miðjan vetur, um sólarlag eða við sólaruppkomu.

Á fréttavef Morgunblaðsins  segir veðurfræðingur á Veðurstofunni að glitskýin séu svo hátt í himinhvolfinu að hafi þau sést bæði á Húsavík og á Akureyri og ætla megi að þau hafi sést víðast hvar þar sem yfirhöfuð sást til himins í morgun. (mbl.is)

Glitsky

Glitsky 2

Glitsky 3

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744