Glæsilegur sigur í fyrsta leik

Völsungur gerði góða ferð vestur á Snæfellsnes í dag þegar keppni hófst í 2. deild karla.

Glæsilegur sigur í fyrsta leik
Íþróttir - - Lestrar 209

Markaskorarar Völsungs í dag, Óli tv. og Santiago.
Markaskorarar Völsungs í dag, Óli tv. og Santiago.

Völsungur gerði góða ferð vestur á Snæfellsnes í dag þegar keppni hófst í 2. deild karla.

Þeir sóttu Víking heim í Ólafsvík og komust yfir strax á 1. mínútu leiksins. Þar var að verki Santiago Feuillassier Abalo sem skoraði af stuttu færi eftir góða sókn.

Ólafur Jóhann Steingrímsson tvöfaldaði forystu Völsungs eftir tæplega tuttugu mínútna leik með góðu skoti utan teigs. Mikael Hrafn Helgason minnkaði muninn fyrir heimamenn eftir rúmlega hálftíma leik. 

Staðan 1-2 í hálfleik og þegar korter var til leiksloka skoraði Ólafur Jóhann sitt annað mark, glæsilegt mark með skoti efst í stöngina fjær og í netið. Staðan 1-3 sem urðu úrslit leiksins.

Glæsilegur sigur í fyrsta leik en þess má geta að heimildarmaður 640.is í Ólafsvík sagði markmann Völsungs, Aron Bjarka Kristjánsson, hafa sýnt stórleik í síðari hálfleik og varið hvað eftir annað þegar Víkingarnir sóttu á Völsung.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Markaskorarar Völsungs í dag, Ólafur Jóhann tv. og Santiago fjær. Mynd úr leik á dögunum.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744