Getur Samfylkingin reiknað barn í konu ?Aðsent efni - - Lestrar 385
Samfylkingin fer mikinn í útreikningum sínum á því hvað hægt er að fá fyrir
að leigja út 12.000 tonna byggðakvóta. Fyrir þessi 12.000 tonn telur
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir að hægt sé að fá heila 2 milljarða. Þá er
líklegast reiknað með að kílóið af þorski sé leigt út á um 170 krónur.
Samkvæmt Verðlagsstofu skiptaverðs var vegið meðalverð alls þorskaflans
tæpar 180 krónur á kíló þannig að það sem situr eftir þegar búið er að borga
leigu eru heilar 10 krónur á kíló til að standa undir rekstri við útgerðina
og borga sjómönnum laun.
Með þessum útreikningum væri hægt að leigja allan þorskafla á Íslandsmiðum
fyrir um 22 milljarða króna. Virði hans er samkvæmt opinberri stofnun 23,4
milljarðar þannig að það sem eftir situr er ekki há upphæð.
Þessar tölur sem Samfylkingin notar til viðmiðunar eru það viðmiðunarverð
sem leiguliðar þurfa að greiða einhverjum handhafa kvótans fyrir að fá að
veiða hann, algjört jaðarverð. Útgerðir sem þurfa að greiða þetta verð lifa
alls ekki af venjulegum þorskveiðum, heldur þarf að stefna markvisst að því
að veiða stærri fisk sem gefur þá hærra verð en meðalverðið segir til um og
veiða ýsu í meira mæli þar sem leiguverð er mun lægra og gefur þá útgerðinni
eitthvert lítilræði í aðra hönd.
Það er vonandi að Samfylkingin komi sér niður úr fílabeinsturninum, fari
betur yfir útreikninga sína og átti sig á því hvers konar vitleysa er í
gangi í sjávarútvegi landsmanna.
Þessir útreikningar Samfylkingarinnar minna núna óneitanlega á útreikninga
Sölva Helgasonar sem fór mikinn og reiknaði m.a. tvíbura í eina „afríkanska“
og var annað barnið hvítt og hitt svart. Nú reiknar Samfylkingin tugi ef
ekki hundruð milljóna í hvert og eitt sjávarþorp landsmanna.
Sigurjón Þórðarson líffræðingur.