Gefa út dagatal í tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna

Soroptimistakonur á Húsavík hafa í tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna látið gera dagatal fyrir árið 2016.

Gefa út dagatal í tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna
Fréttatilkynning - - Lestrar 482

Soroptimistakonur á Húsavík hafa í tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna látið gera dagatal fyrir árið 2016.

Á dagatalinu minnumst við formæðra okkar sem af æðruleysi unnu störf sín með sæmd og ábyrgðartilfinningu.  Ein kona er kynnt í hverjum mánuði í stuttu máli.  Allar konurnar hafa búið í S-Þingeyjarsýslu sú elsta fædd árið 1858 og sú yngsta fædd árið 1910. 

Dagatalið verður til sölu á Jólamarkaði Völsungs 28.nóvember og í Kaskó 5.desember.  


Einnig er hægt að hafa samband við Kristrúnu Sigtryggsdóttur í síma 864-7868 eða 464-1610.

Kveðja Soroptimistakonur á Húsavík.

Dagatal


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744