Gaumur - Afbrotum fækkar á Miðsvæði

Gaumur, sjálfbærniverkefnið á Norðurlandi eystra hefur nú birt nýjustu gögn um afbrot á Miðsvæði í samanburði við landið allt. Birtar eru upplýsingar um

Gaumur - Afbrotum fækkar á Miðsvæði
Almennt - - Lestrar 101

Gaumur, sjálfbærniverkefnið á Norðurlandi eystra hefur nú birt nýjustu gögn um afbrot á Miðsvæði í samanburði við landið allt.

Birtar eru upplýsingar um földa afbrota miðað við 10.000 íbúa.

Á vöktunartíma Gaums hefur tíðni afbrota alltaf verið lægri á Miðsvæði en á landinu öllu.

Fæst voru afbrotin á Miðsvæði árið 2012, 596 talsins en flest árið 2019, 2.090 talsins.

Þróunin hefur þó verið í þá átt að á vöktunartímanum hefur afbrotum farið fjölgandi, en þau voru 1.019 árið 2011 og 1.378 árið 2020. Á milli áranna 2019 og 2020 varð umtalsverð fækkun á afbrotum bæði á landinu öllu og á miðsvæði.

Eins og áður hefur komið fram á vettvangi Gaums fékk lögregluembættið aukið fjármagn til umferðaeftirlits á árinu 2019 og því var um skipulegra eftirlit að ræða hluta ársins 2019 en öllu jöfn er viðhaft.

Það skýrir því að stærstum hluta þá miklu fjölgun sem var á afbrotum á Miðsvæði á því ári og að sama skapi fækkun á milli áranna 2019 og 2020.

Ljósmynd - Aðsend


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744