Gangsetningu frestað framyfir helgi

Bygging á stórri verksmiðju er flókin og það er í mörg horn að líta.

Gangsetningu frestað framyfir helgi
Almennt - - Lestrar 488

Ljósmynd Gaukur Hjartarson.
Ljósmynd Gaukur Hjartarson.

Bygging á stórri verksmiðju er flókin og það er í mörg horn að líta segir á heimasíðu PCC BakkaSilicon í dag.

"Leyst hefur verið úr þeim vandamálum sem komu upp við prófanir á hráefnismötun fyrir ofnana. Hinsvegar komu í ljós í morgun lekar á ryki í síupokum í reykhreinsivirkinu.

Til að laga þetta þarf að skipta um klemmur á síupokunum og þétta þær, varahlutir til verksins eru væntanlegir til Húsavíkur um helgina.

Við hjá PCC BakkiSilicon höfum frá byrjun lagt mikla áherslu á umhverfismál og þar sem þessi hlutur snýr að útblæstri hjá okkur og skilvirkri leið til að fanga ryk verður ofninn ekki settur í gang fyrr en búið er að tryggja að starfsemi reykhreinsivirkisins sé eftir ítrustu kröfum.

Vegna þessa frestast byrjun á upphitun ofnsins því miður fram yfir helgi". Segir í tilkynningunni.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744