Gangsetning fyrri ljósbogaofns kísilvers PCC gekk velAlmennt - - Lestrar 773
Fyrri ljósbogaofn kísilvers PCC á Bakka var settur í gang í gærkveldi.
Á heimasíðu fyrirtækisins segir að gangsetning Birtu hafi gengið vel.
Til að byrja með er settur straumur á í stuttan tíma í einu, u.þ.b. 5 mín á 30 mín fresti. Tíminn sem straumurinn er settur á er svo aukinn í 10 mín í dag og svo koll af kolli þangað til að stöðugur straumur er á skautunum.
Þetta er gert til að upphitnunin fari ekki of skarpt af stað og fóðringin bakist rétt. Afgas frá ofninum er sent í gegnum reykhreinsivirkið sem dregur úr mengun og lykt frá upphituninni.
Þó er möguleiki að væg viðarbrunalykt finnist í næsta nágreni við verksmiðjuna við réttar veðuraðstæður í upphitunarfasanum.