Fyrsta formlega sprenging Vaðlaheiðarganga

Fyrsta formlega sprenging Vaðlaheiðarganga verður föstudaginn 12. júlí í gangamunnanum á Svalbarðsströnd.

Fyrsta formlega sprenging Vaðlaheiðarganga
Fréttatilkynning - - Lestrar 418

Framkvæmdir við gangnamunnann. Lj. vadlaheidi.is
Framkvæmdir við gangnamunnann. Lj. vadlaheidi.is

Fyrsta formlega sprenging Vaðlaheiðarganga verður föstudaginn 12. júlí í gangamunnanum á Svalbarðsströnd.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og 1. þingmaður Norðausturkjördæmis, mun þá tendra kveikjuþráðinn og markar um leið upphaf hinnar eiginlegu gangagerðar.

Sprengingin er áætluð milli kl: 14:30 og 15:00 og má búast við að hún heyrist vel frá Akureyri.

Af öryggisástæðum er takmarkaður fjöldi viðstaddra, því er fólk beðið um að gera sér ekki ferð á svæðið af þessu tilefni. Einnig má búast má við truflunum á umferð um Hringveg við Hallland af þessum sökum.

Í GEGNUM HEIÐINA

Kynningarblað um Vaðlaheiðargöng Í GEGNUM HEIÐINA verður dreift á öll heimili á starfsvæði Eyþings hér er hægt að nálgast pdf útgáfu af blaðinu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744