Frístundabændur réttuðu á BakkaAlmennt - - Lestrar 484
Það voru göngur og réttir víða í Þingeyjarsýslum um helgina og meðal þeirra sem smöluðu afrétt sína voru frístundabændur á Húsavík.
Það var gert í björtu og fallegu veðri á laugardagsmorgni og eftir hádegi var réttað á Bakka.
Hér koma nokkrar myndir sem ljósmyndari 640.is tók í réttunum og sýnir fólk og fénað í haustblíðunni.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.
Byrjað að draga fé í dilka.
Formaður fjáreigenda ásamt barnabarni með lamb í takinu.
Jón Ágúst athugar mark og Hlífar fylgist vel með honum.
Trausti Aðalsteinsson með barnabarn í fanginu.
Ella Gunnsteins og Halldór Sigfússon rýna í lömbin.
Atli á Laxamýri var að vanda í Húsavíkurrétt en það slæðist fé frá honum með fé húsvíkinga til byggða.
María Jóns ásamt nokkrum af afkomendum sínum.
Stóru-Tunguhjónin Aðalsteinn og Guðrún.
Dregið í dilka.
Valur Guðmundsson í dilknum hjá afa sínum sem..
..hér rýnir í bókhaldið.
Feðgarnir Kristinn og Sveinbjörn Lund.
Ingunn Ólína og Kaisa voru í hliðinu hjá Alla og Óla Jóni.
Samhent hjón, Jóna Björg og Bjarni H draga í dilka.
Ómar foringi með tvö í takinu.
Frissi í hliðinu og með bókhaldið á hreinu.
Að venju var margt fólk að fylgjast með og meðal þess voru feðgarnir Hreinn og Jón.
Þrengt að fénu í restina.