Frístundabændur réttuðu á Bakka

Það voru göngur og réttir víða í Þingeyjarsýslum um helgina og meðal þeirra sem smöluðu afrétt sína voru frístundabændur á Húsavík.

Frístundabændur réttuðu á Bakka
Almennt - - Lestrar 484

Það voru göngur og réttir víða í Þingeyjarsýslum um helgina og meðal þeirra sem smöluðu afrétt sína voru frístundabændur á Húsavík. 

Það var gert í björtu og fallegu veðri á laugardagsmorgni og eftir hádegi var réttað á Bakka. 

Hér koma nokkrar myndir sem ljósmyndari 640.is tók í réttunum og sýnir fólk og fénað í haustblíðunni.

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.

Réttað á Bakka

Byrjað að draga fé í dilka.

Formaður frístundarbænda dregur í dilka með barnabarni sínu

Formaður fjáreigenda ásamt barnabarni með lamb í takinu.

Hlífar fylgist vel með Jóni Ágúst

Jón Ágúst athugar mark og Hlífar fylgist vel með honum.

Trausti Aðalsteinsson með barnabarn

Trausti Aðalsteinsson með barnabarn í fanginu.

Ella Gunnsteins og Halldór H. Sigfússon

Ella Gunnsteins og Halldór Sigfússon rýna í lömbin.

Atli á Laxamýri

Atli á Laxamýri var að vanda í Húsavíkurrétt en það slæðist fé frá honum með fé húsvíkinga  til byggða. 

María Jóns ásamt nokkrum afkomendum sínum

María Jóns ásamt nokkrum af afkomendum sínum.

Stóru-Tunguhjónin

Stóru-Tunguhjónin Aðalsteinn og Guðrún.

Dregið í dilka

Dregið í dilka.

Valur Guðmundsson

Valur Guðmundsson í dilknum hjá afa sínum sem..

Sigurður Jónsson

..hér rýnir í bókhaldið.

Kristinn og Sveinbjörn Lund

Feðgarnir Kristinn og Sveinbjörn Lund.

Ingunn Ólína og Kaisa

Ingunn Ólína og Kaisa voru í hliðinu hjá Alla og Óla Jóni.

Jóna Björg og Bjarni Hilmar

Samhent hjón, Jóna Björg og Bjarni H draga í dilka.

Ómar Egilsson

Ómar foringi með tvö í takinu.

Friðrik Jónasson

Frissi í hliðinu og með bókhaldið á hreinu.

Dilli og Jón

Að venju var margt fólk að fylgjast með og meðal þess voru feðgarnir Hreinn og Jón.

Réttað á Bakka

Þrengt að fénu í restina.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744