Fríða í Sjávarborg 100 ára í dagFólk - - Lestrar 738
Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir er 100 ára í dag 20. mars en flestir þekkja hana sennilega best sem Fríðu í Sjávarborg.
Fríða fæddist á Saurbæ á Langanesströnd í Norður-Múlasýslu, dóttir Sigurðar Árnasonar bónda og Guðbjargar Stefaníu Þorgrímsdóttur. Hún var þriðja elst sex systra.
Um tvítugt flutti hún til Húsavíkur og giftist Þór Péturssyni útgerðarmanni 1940. Hann andaðist 1989, en þau eignuðust sex börn og eru fjögur þeirra á lífi.
Þau bjuggu í Sjávarborg en þaðan flutti Fríða á dvalarheimilið Hvamm í janúarmánuði 2019, þá tæplega 99 ára gömul.
Þar sem heimsóknarbann er á Hvammi vegna kórónuveirunnar sem veldur sjúkdómnum COVID-19 gátu vinir og ættingjar því ekki fagnað með henni. Nokkrir afkomendur hennar komu þó saman við Hvamm og sungu fyrir hana afmælissönginn úr góðri fjarlægð.
Fríða veifar til afkomenda af svölum Hvamms.
Afmælissöngurinn sunginn.
Afmælisbarnið hlýðir á söng afkomendanna.
Hér hefur afmælisbarnið sagt enn eitt gullkornið.
En það er ekki þar með sagt að engin sé afmælisveislan því á Hvammi var skreytt með blöðrum og boðið upp á lambalæri í hádeginu í tilefni dagsins. Ís og ávextir í eftirmat og síðan bauð afmælisbarnið upp á rjómatertu með síðdegiskaffinu.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.