12. mar
Framsýn samþykkir fjárstuðning til flóttafólks frá ÚkraínuAlmennt - - Lestrar 48
Stjórn Framsýnar telur sig ekki getað setið hjá hvað varðar þær hörmungar sem eiga sér stað í Úkraínu.
Eins og áður hefur komið fram hefur félagið þegar ákveðið að leggja til eina íbúð undir flóttafólk frá Úkraínu og fleiri komi til þess að þörfin verði meiri fyrir íbúðir.
Auk þess mun Framsýn styrkja hjálparstarf vegna flóttafólks frá Úkraínu um eina evru fyrir hvern félagsmann eða um kr. 300.000,-.
Stjórn Framsýnar skorar jafnframt á önnur stéttarfélög að koma líkt og félagið að verkefninu með fjárstuðningi og láni á orlofsíbúðum.
Að mati stjórnar er það ekki í boði að stéttarfélög eða önnur hagsmunasamtök sitji hjá á ófriðartímum sem þessum.