Framsýn fundaði með ÍslandsþaraAlmennt - - Lestrar 659
Fulltrúar frá Framsýn og Íslands-þara ehf. funduðu í gærmorgun en eins og áður hefur komið fram á 640.is hyggur fyrirtækið á upp-byggingu og rekstur á stórþara-vinnslu á Húsavík.
Vinnslu sem nýtir græna jarð-varmaorku og sjálfbærar vinnsluaðferðir við framleiðsluna.
Stefnt er að því að byggja vinnsluna upp í áföngum og að fullri framleiðslugetu verði náð eftir 5-6 ár. Fyrirtækið hefur þegar sótt um tvær lóðir undir starfsemina við Hrísmóa sunnan við Húsavík. Um er að ræða samtals 8000m2 lóðir. Verði verkefnið að veruleika munu verða til allt að 90 fjölbreytt störf í landvinnslu og útgerð á Húsavík.
Á heimasíðu Framsýnar segir að forsvarsmenn Íslandsþara leggja mikið upp úr góðu samstarfi við stéttarfélögin og því óskuðu þeir eftir fundi með fulltrúum félagsins til að fara yfir forsendur verkefnisins, fjölda og tegundir starfa sem þar verða til ásamt öðrum tengdum þáttum.





























































640.is á Facebook