Frábærir skíðadagar í febrúar

Óhætt er að segja að sú ákvörðun veðurguðana að gefa okkur snjó í Skálmel þennan veturinn hafi hitt í mark hjá bæjarbúum.

Frábærir skíðadagar í febrúar
Almennt - - Lestrar 342

Óhætt er að segja að sú ákvörðun veðurguðana að gefa okkur snjó í Skálmel þennan veturinn hafi hitt í mark hjá bæjarbúum.

Það hefur verið ágætis tilbreyting frá undanförnum vetrum að geta skellt sér á skíði í marga daga í röð.

Á heimasíðu Norðurþings segir að aðsóknartölur í Skálamelin tali sínu máli en frá 2. febrúar til 22. febrúar mættu 1218 manns í Melinn og skemmtu sér á skíðum. 

Þann 14. febrúar var fjölskyldufjör í fjallinu í anda heilsueflandi samfélags og forvarna en samvera með fjölskyldu er hornsteinn í forvörnum og var margt um manninn í fjallinu og heppnaðist viðburðurinn vel í alla staði og setti um leið jákvæðan svip á bæjarbraginn


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744