Frá hruni og heim-Steingrímur J. áritar í bókabúðinni

Steingrímur J. Sigfússon mun verða í Bókaverslun Þórarins á Húsavík n.k. föstudag 22. nóvember kl. 16:00 og árita bók sína, Frá Hruni og heim.

Frá hruni og heim-Steingrímur J. áritar í bókabúðinni
Fréttatilkynning - - Lestrar 142

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon.

Steingrímur J. Sigfússon mun verða í Bókaverslun Þórarins á Húsavík n.k. föstudag 22. nóvember kl. 16:00 og árita bók sína, Frá Hruni og heim.

Steingrímur hefur um árabil verið í framlínu íslenskra stjórnmála og hafa fáir lent í viðlíka sviptivindum.  Í bókinni sem er bæði áhugaverð og opinská ræðir Steingrímur við Björn Þór Sigurbjörnsson um eitt erfiðasta verkefni íslenskrar stjórnmálasögu: Að vera í forystu við að reisa landið úr rustum Hrunsins.

Steingrímur mun að sjálfsögðu spjalla við gesti og gangandi um bókina og fleira.

Allir velkomnir, kaffi og konfekt verður á boðstólnum.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744