Fótboltinn að komast á fullt: 12 leikir á 4 dögumÍþróttir - - Lestrar 425
Þrátt fyrir hret í veðurfari hjá okkur hérna norðanlands er fótboltinn að komast á fullt hjá öllum flokkum.
Eins og flestir ættu að vita er mfl karla kominn af stað og mfl kvenna hefur leik næstkomandi fimmtudag hérna á Húsavíkurvelli þegar Sindra stúlkur koma í heimsókn.
Það er ekki eini leikurinn sem að Völsungur spilar þann daginn en 5. fl karla spilar gegn Þór á Húsavíkurvelli kl. 16.00 og 16.50.
Þá spilar 5. flokkur kvenna inná Akureyri gegn Þór á fimmtudeginum þannig að það er nóg um að vera næstkomandi fimmtudag.
Áfram heldur boltinn að rúlla því á föstudaginn spilar 4.flokkur karla við KF/Dalvík klukkan 16.30 og klukkan 18.00 spilar 5.flokkur kvenna gegn Hetti hér á Húsavíkurvelli.
Um helgina fer 3.flokkur kvenna til Reykjavíkur og spilar gegn Þrótti og Stjörnunni.
Mfl karla spilar gegn Leikni R á Húsavíkurvelli á Laugardaginn kl. 16.30.
Helginni líkur svo með þvi að 3.flokkur karla spilar gegn suðurnesjamönnum í NRV á Húsavíkurvelli klukkan 14.00.
Frá fimmtudegi til sunnudags munu Völsungar spila 12 leiki séu allir flokkar taldir saman.
Því má með sanni segja að fótboltinn sé kominn á fullt! (volsungur.is)