Fleiri hleðslustöðvar á Norðurland eystraAlmennt - - Lestrar 169
Á mánudag fyrir viku lauk framlengdum frest Orkusjóðs til umsókna fyrir styrki til kaupa á, og uppsetningu hleðslustöðva en mikill skortur er á slíkum stöðvum fyrir almenning á svæðinu, einkum austan Vaðlaheiðar.
Styrkurinn getur að hámarki verið fyrir 33% kostnaðar sem er lækkun frá fyrra ári þegar hann var 50%.
Á heimasíðu SSNE segir:
"Nokkrar umsóknir voru sendar inn af okkar svæði og standa vonir til að net hleðslustöðvanna verði þéttara á okkar svæði fyrr en síðar. Búið er að panta stöðvar til að setja upp á bæði Kópaskeri og Raufarhöfn og eins bíða stöðvar á Bakkafirði og Þórshöfn uppsetningar en tilfinnanlegur skortur er á rafvirkjum á svæðinu frá Húsavík til Vopnafjarðar.
Atvinnutækifærin leynast víða! Ljóst er að eftirspurn eftir aðgengi að hleðslustöðvum mun margfaldast á næstu árum eftir því sem orkuskipti verða í bílaflota landans, sem og bílaleiganna".