01. mar
			Fjórir keppendur frá HSÞ á Meistaramóti ÍslandsÍþróttir -  - Lestrar 640
			
		HSÞ sendi fjóra keppendur á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram sl. helgi.
Þetta voru Dagbjört Ingvarsdóttir, Unnar Þór Hlynsson, Hilmir Smári Kristinsson og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir.
Á heimasíðu HSÞ segir að keppendurnir hafi verið í miklu stuði og dugleg að bæta sinn persónulega árangur.
Áslaug Munda bætti sinn árangur í 5 af 6 greinum sem hún keppti í, Hilmir Smári bætti sig í 3 greinum af 5 og Unnar bætti sig í 1 grein af þremur. Þá varð Dagbjört í 2. sæti í langstökki í flokki 20-22 ára stúlkna og Hilmir Smári varð þriðji í kúluvarpi 15 ára pilta.
Alls fengu keppendur HSÞ 15 stig en 6 efstu sætin gefa stig.

 































 
									 


 
 

 
 






























 640.is á Facebook
 640.is á Facebook