Fjórða þing Starfsgreinasambands Íslands hefst á miðvikudaginnFréttatilkynning - - Lestrar 164
Fjórða þing Starfsgreinasambands Íslands verður sett í Hofi á Akureyri þann 16. október 2013 klukkan 15 undir yfirskriftinni Samstaða og Samvinna.
Starfsgreinasamband Íslands (SGS) er landssamband almenns og sérhæfðs verkafólks. SGS er stærsta landssamband innan ASÍ, en 19 verkalýðsfélög eiga aðild að sambandinu með um 50 þúsund félagsmenn. Af þessum 19 félögum fer Starfsgreinasambandið með umboð fyrir 16 félög í komandi kjaraviðræðum en samkvæmt hefð semur Flóabandalagið sér, þ.e. Efling-stéttarfélag, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK) og Vlf. Hlíf í Hafnarfirði.
Aðildarfélög SGS eru þessi:
Efling-stéttarfélag, Vlf. Akraness, Stéttarfélag Vesturlands, Vlf. Snæfellinga, Vlf. Vestfirðinga, Vlsfél. Bolungarvíkur, Stéttarfélagið Samstaða, Aldan stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Vlf. Þórshafnar, Afl-Starfsgreinafélag, Vlf. Suðurlands, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Vfl. Grindavíkur, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK), Vlsfél. Sandgerðis og Vlf. Hlíf.