Fjölmenni á hrútasýningu á MærudögumAlmennt - - Lestrar 937
Fjáreigendafélag Húsavíkur stóð fyrir árlegri hrútasýningu á Mærudögum í gærkvöldi sem var fjölsótt að venju.
Níu glæsilegir hrútar voru til sýnis í ár.
Dómarar kvöldsins komust að þeirri niðurstöðu að Helgi magri væri lang fallegasti unghrúturinn. Eigandi er Haukur Snorrason.
Sigurvegari kvöldsins var Simbi frá Fjárræktarbúinu í Grobbholti. Fyrir þá sem vilja sjá þennan eðalhrút þá hangir mynd af honum uppi á Kaffihúsinu Hérna við Stóragarð. Simbi er frá Búvöllum í Aðaldal.
Áhorfendum gafst kostur á að velja sætasta hrút kvöldsins. Hrúturinn Bakkurs sem er í eigu feðganna Óla Jóns og Aðalsteins Ólafs hlaut kosningu.
Ríkissjónvarpið var á staðnum og fjallaði um sýninguna enda einn vinsælasti viðburðurinn á Mærudögum á hverjum tíma.
Hrútasýningin var fjölmenn að venju.
Hér er hrútaþukl í uppsiglingu.
Simbi var valinn besti hrúturinn.
Helgi magri var besti unghrúturinn.
Bakkus var valinn sætasti hrúturinn.


































































640.is á Facebook