Fjölmenn hátíðarhöld að venju á 1. maí

Það var fjölmenni samankomið í Íþróttahöllinni á Húsavík í dag þar sem stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum stóðu fyrir hátíðarhöldunum í tilefni af

Fjölmenn hátíðarhöld að venju á 1. maí
Almennt - - Lestrar 556

Guðni Ágústsson fór með gamanmál.
Guðni Ágústsson fór með gamanmál.

Það var fjölmenni samankomið í Íþróttahöllinni á Húsavík í dag þar sem stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum stóðu fyrir hátíðarhöldunum í tilefni af baráttudegi verkafólks 1. maí.

Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar  ávarpaði samkomuna en hátíðarræðu dagsins flutti Ásdís Skúla­dótt­ir, leik­stjóri og einn stofn­enda Gráa hers­ins, en á Húsavík var dag­ur­inn helgaður bar­áttu eldri borg­ara fyr­ir bætt­um kjör­um. 

Að ræðuhöldum loknum voru skemmtiatriði þar sem söngfélagið Sálubót söng nokkur lög undir stjórn Jaan Alavere. Eyþór Ingi og Guðni Ágústsson sáu um grín og gamanmál auk þess sem Eyþór Ingi tók nokkur lög en það gerðu einni Sigga Beinteins og Grétar Örvarsson. 

1. maí 2019

1. maí 2019

1. maí 2019

1. maí 2019

Meðfylgjandi myndir tók Gaukur Hjartarson.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744