Fjölmenn hátíðarhöld að venju á 1. maíAlmennt - - Lestrar 553
Það var fjölmenni samankomið í Íþróttahöllinni á Húsavík í dag þar sem stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum stóðu fyrir hátíðarhöldunum í tilefni af baráttudegi verkafólks 1. maí.
Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar ávarpaði samkomuna en hátíðarræðu dagsins flutti Ásdís Skúladóttir, leikstjóri og einn stofnenda Gráa hersins, en á Húsavík var dagurinn helgaður baráttu eldri borgara fyrir bættum kjörum.
Að ræðuhöldum loknum voru skemmtiatriði þar sem söngfélagið Sálubót söng nokkur lög undir stjórn Jaan Alavere. Eyþór Ingi og Guðni Ágústsson sáu um grín og gamanmál auk þess sem Eyþór Ingi tók nokkur lög en það gerðu einni Sigga Beinteins og Grétar Örvarsson.
Meðfylgjandi myndir tók Gaukur Hjartarson.
































































640.is á Facebook