Fiskvinnslufólk á skólabekkAlmennt - - Lestrar 382
Nú stendur yfir 40 klukkustunda kjarasamningsbundið námskeið fyrir fiskvinnslufólk. Nítján þátttakendur eru á námskeiðinu, sautján pólverjar og tveir íslendingar sem flestir koma frá Vísi á Húsavík.
Á heimasíðu Framsýnar segir að um sé að ræða námskeið sem allir starfsmenn í fiskvinnslu eigi rétt á. Miðað er við að starfsmenn ljúki námskeiðinu á fyrsta starfsári.
Framsýn í samstarfi við fiskvinnslufyrirtæki á svæðinu hafa markvist unnið að því að bjóða upp á fiskvinnslunámskeið á hverju ári. Námskeiðið sem stendur yfir þessa viku er þriðja námskeið sem haldið er fyrir byrjendur í fiskvinnslu á rétt um ári.
Það helsta sem tekið er fyrir á námskeiðinu er, veiðar og vinnsla, öryggismál, samskipti á vinnustað, atvinnulífið, hreinlæti, skyndihjálp, innra eftirlit, vinnuaðstaða og líkamsbeiting. Næsta föstudag má svo reikna með að 19 fiskvinnslumenn muni útskrifast sem sérhæfðir fiskvinnslumenn. Þá munu þeir einnig fá launahækkun en námskeiðið veitir þeim tveggja launaflokkahækkun m.v. að þeir hafi verið í 5 launaflokki sem er grunnlaunaflokkur í fiskvinnslu.