Fimmta hvalaskoðunarvertíðin hafin hjá Húsavík Adventures

Húsavík Adventures hóf sitt hvalaskoðunartímabil í vikunni og hafa þá þrjú fyrirtæki hafið starfsemi sína þetta árið.

Eva Björk og Ármann Örn um borð í Kjóa.
Eva Björk og Ármann Örn um borð í Kjóa.

Húsavík Adventures hóf sitt hvalaskoðunartímabil í vikunni og hafa þá þrjú fyrirtæki hafið starfsemi sína þetta árið.

Þetta er fimmta vertíðin hjá RIB-hvalaskoðunarfyrirtækinu sem var stofnað um mitt sumar 2015.

Að þessu tilefni veitti Eva Björk Káradóttir forstöðu-maður Hvalasafnsins á Húsavík Ármanni Erni Gunnlaugssyni framkvæmdastjóra Húsavík Adventures blómvönd og teikningu eftir spænsku listakonuna Renu Ortega.

Á heimasíðu Hvalasafnsins segir að vorið nálgist æ meir þrátt fyrr að enn sé snjór á Húsavík. Frést hefur að fyrstu lundarnir séu mættir í Grímsey og ætti því ekki að vera langt þar til að Lundey taki á móti sínum árlegu sumargestum í þeim tilgangi að ala upp ungviði sín.

Meðfylgjandi mynd er fengin af heimasíðu Hvalasafnsins.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744