Félagar í Þingiðn samþykktu kjarasamninginn

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins lauk í hádeginu í dag. Þingiðn á aðild að samningnum fyrir sína félagsmenn.

Félagar í Þingiðn samþykktu kjarasamninginn
Almennt - - Lestrar 108

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins lauk í hádeginu í dag. Þingiðn á aðild að samningnum fyrir sína félagsmenn.

Alls voru 89 félagsmenn á kjörskrá, atkvæði greiddu 14 eða 15,7% félagsmanna. Já sögðu 71.43% þeirra félagsmanna sem greiddu atkvæði, nei sögðu 21,43% félagsmanna. 7,14% tóku ekki afstöðu til samningsins og skiluðu auðu.

Samningurinn skoðast því samþykktur með miklum meirihluta. (framsyn.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744