Færði ungum Völsungum bolta að gjöf

Í hálfleik á leik Völsungs og Þróttar úr Vogum í dag færði Faktura ehf. ungum Völsungum fótbolta að gjöf.

Færði ungum Völsungum bolta að gjöf
Fólk - - Lestrar 436

Haukur afhenti krökkunum boltana í hálfleik.
Haukur afhenti krökkunum boltana í hálfleik.

Í hálfleik á leik Völsungs og Þróttar úr Vogum í dag færði Faktura ehf. ungum Völsungum fótbolta að gjöf.

Faktura ehf. er bókhalds- og fjármálafyrirtæki hér í bæ og það var Haukur Sigurgeirsson stofnandi þess og eigandi sem afhenti þessa rausnarlegu gjöf.

Það eru knattspyrnuiðkendur í 6, 7, og 8 flokki karla og kvenna sem fá bolta og þau sem voru á leiknum í dag fengu sína bolta afhenta.

Svona gjöf stuðlar að því að allir krakkar hafi tök á því að æfa og leika sér með bolta utan æfingatíma en um 90 krakkar æfa knattspyrnu í þessum þrem flokkum með Völsungi.

 

Ljósmynd 640.is

Haukur afhendir hér boltana.

Ljósmynd 640.is

Haukur í brekkunni með ánægðum Völsungum af yngri kynslóðinni.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744