Elska – sýning á HúsavíkFréttatilkynning - - Lestrar 397
Einleikurinn Elska, eftir Jennýju Láru Arnórsdóttur, var sýndur við góðar viðtökur í sveitarfélögum Þingeyjarsýslna fyrir jólin 2013 og á Café Rosenberg í janúar 2014.
Einleikurinn er unnin upp úr raunverulegum ástarsögum Þingeyinga. Í verkinu eru sannar ástarsögur okkar tíma dregnar fram í dagsljósið og spurningum um ástina velt upp. Hafa einkenni ástarinnar breyst í gegnum tíðina eða eru það kannski frekar hugmyndir okkar um ástina sem hafa breyst?
Verkið byggir á viðtölum við pör og einstaklinga,sem búsettir eru í Þingeyjarsýslunum, á aldrinum 24-78 ára.
Viðtölin voru tekin upp síðla sumars og haustið 2013. Jenný Lára hefur unnið handritið upp úr þeim upptökum. Leikurinn er einnig í höndum Jennýjar Láru, en í persónusköpun styðst hún einnig við upptökurnar.
Verkefnið er unnið með styrk frá Aftur heim.
Athugið að aðeins verður þessi eina sýning.
Sýnt verður á Sjóminjasafninu fimtudaginn 12. júní kl. 20:00





























































640.is á Facebook