Ekki boðlegur verkafólki á lágmarkslaunum

Verkalýðsfélag Þórshafnar stendur heilshugar við bakið á þeim stéttarfélögum innan Starfsgreinasambands Íslands sem skrifuðu ekki undir kjarasamning aðila

Ekki boðlegur verkafólki á lágmarkslaunum
Fréttatilkynning - - Lestrar 204

Verkalýðsfélag Þórshafnar stendur heilshugar við bakið á þeim stéttarfélögum innan Starfsgreinasambands Íslands sem skrifuðu ekki undir kjarasamning aðila vinnumarkaðarins. 

Að mati félagsins er nýgerður kjarasamningur ekki boðlegur verkafólki á lágmarkslaunum.

Bæði hvað varðar launahækkanir og eins eru það mikil vonbrigði að stjórnvöld skyldu ekki sjá ástæðu til að lækka skatta á lágtekjufólki í stað þess nota svigrúmið til skattalækkana fyrir þá tekjuhærri.
 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744